Niðurröðun klár

Ágætu forráðamenn/þjálfarar skráðra liða á Nettómótið 2023

Leikjaniðurröðun liða er lokið og hér til hliðar á síðunni undir "Gögn-mótið 2023" má finna flokkaða niðurröðun hvers liðs ásamt bíótímum auk frekari dagskrárupplýsinga og tímasetninga. Eins og við tilkynntum fyrir mót þá höfðum við í ár einungis 12 velli til umráða en á stærstu mótunum til þessa höfum við þurft að nota allt að 15 velli. Okkur var ljóst að við gætum lent í vanda færu skráningar umfram það sem leikjaramminn gæfi okkur og sú varð raunin.  Auðvitað viljum við ekki þurfa að vísa liðum frá eða biðja þau að fækka og þjappa í liðum þannig að við ákváðum að raða mótinu upp með öllum liðunum sem skráðu sig og það þýðir að við náum ekki að gefa alveg öllum árgöngum 5 leiki en flestum þó.  Niðurstaðan er þessi:

  • Árgangur 2016 – 5 leikir á lið, 1x12 min
  • Árgangur 2015 – 5 leikir á lið, 1x12 min
  • Árgangur 2014 – 4 leikir á lið, 2x12 min
  • Árgangur 2013 – 5 leikir á lið, 2x12 min
  • Árgangur 2012 – 5 leikir á lið, 2x12 min

Alls eru liðin í mótinu 221 og leikir á dagskrá eru 536.  Ef lið forfallast verður öðrum liðum innan sama árgangs boðið að hlaupa í skarðið ef þau hafa tækifæri til.

Á Nettómótinu 2.-3. mars 2024 munum við verða með a.m.k 16-18 velli til umráða og þá verða allar takmarkanir úr sögunni.  Frekari gögn og upplýsingar verða birtar eða uppfærðar hér á heimasíðunni eftir því sem þörf verður á í aðdraganda mótsins.

Við hvetjum jafnframt alla til að kynna sér alla afþreyingu sem er innifalin í mótinu eins og Hoppukastalagarðinn sem settur verður upp í Reykjaneshöll og Vatnaveröld sundmiðstöð þar sem m.a. eru nýjar magnaðar rennibrautir auk þess sem ný WipeOut braut verður sett upp í innilauginni. Það er þó það skilyrði sett að einungis syntir keppendur fá aðgang í hana.

Hlökkum til að sjá ykkur og  við ætlum okkur að halda geggjað Nettómót líkt og áður.

Kv.

KarfaN,hagsmunafélag


Skráningum lokið - Niðurröðun hafin - Þátttaka umfram áætlanir

Við lokun skráninga er ljóst að sá leikjarammi sem við höfðum gefið okkur fyrir mótið er sprunginn.

Við ætlum okkur engu að síður að reyna allt sem í okkar valdi stendur til að koma öllum liðum inn sem er ekki einfalt verk en við erum með 36 lið umfram það sem við ætluðum okkur. Þetta þýðir að við gætum þurft að breyta einhverjum tímasetningum á útgefinni dagskrá og jafnframt tefur þetta eitthvað niðurröðunina og flækir en við reynum að gera okkar besta.

Alls hafa 23 félög boðað komu sína á Nettómótið 2023 og ætlum við að hafa þetta mikla hátíð að venju og skemmta okkur sem aldrei fyrr.

Skráðir keppendur á mótið eru 1.080 og eru liðin á mótinu í ár 221 talsins frá eftirfarandi félögum:

Ármann, Breiðablik, Fjölnir, Hamar, Haukar, Höttur, ÍA, Keflavík, KR, Laugdælir, Njarðvík, UMF Samherjar, Selfoss, Sindri, Skallagrímur, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur, Vestri, Þór Akureyri og Þór Þorlákshöfn.

Kv.

KarfaN,hagsmunafélag


Lokadagur skráninga runninn upp

Minnum á að lokadagur skráninga er í dag, fimmtudaginn 23. febrúar og allra síðasti dagur til skráninga á Nettómótið 2023. Niðurröðun hefst í kjölfarið.

KarfaN, hagsmunafélag


Upplýsingar um skráningar

Hér til hliðar á síðunni undir Tenglar/Gögn mótið 2023 er að finna skjöl með upplýsingum um skráningu, mótsgjald, dagskrá o.fl.

Samhliða því hefur verið opnað fyrir rafrænar skráningar á mótið á sama stað.  Skráningarfrestur er til og með 23. febrúar n.k. og ath. að einungis er hægt að skrá lið en ekki einstaklinga.

Upplýsingar um bíómyndirnar á mótinu eru alveg að detta í hús og verða settar inn um leið og þær liggja fyrir.

Á mótinu í ár verður leikið á 12 völlum í 4 íþróttahúsum líkt og 2022 sem eru færri vellir en þegar mest var en lengi vel höfðum við 15 velli til umráða.

Vegna þessa mun stærð mótsins takmarkast af því að við munum geta tekið á móti 112 liðum í árgöngum 2012, 2013 og 2014 og 74 liðum í árgöngum 2015 og 2016. Þetta gæti þýtt að við verðum að setja einhver takmörk á fjölda liða í einhverjum tilfellum þó við vonumst til að sleppa við það.

Á mótinu sem verður haldið 2024 eigum við hins vegar von á nýju íþróttahúsi inn þar sem við munum fá 4 nýja vellli inn í umgjörðina.

KarfaN,hagsmunafélag.

 


Nettómótið verður haldið 4.-5. mars 2023

Næsta Nettómót barna- og unglingaráða körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur verður haldið í Reykjanesbæ helgina 4.-5. mars n.k. 

Mótið er fyrir drengi og stúlkur í minnibolta fædd árið 2012 og síðar.

Takið helgina frá fyrir þessa miklu körfuboltahátíð. Frekari upplýsingar verða sendar út síðar í janúar.

KarfaN,hagsmunafélag


Óskilamunir að loknu Nettómóti 2022

Eins og alltaf þegar margir koma saman á Nettómóti vill það brenna við að eitthvað gleymist enda fjörið mikið. Eitthvað af óskilamunum hefur nú safnast upp og hefur þeim verið safnað saman í Íþróttahúsinu Sunnubraut, sími 421 1771.

Meðfylgjandi mynd sýnir það sem safnað hefur verið saman.

KarfaN

Óskilamunir 2022


Næg afþreying verður í boði á Nettómótinu

Líkt og áður gerum við fullt af skemmtilegum hlutum saman á Nettómótinu með fjölskyldu og vinum.

Allir keppendur og liðstjórar fá frítt í Vatnaveröld-Fjölskyldusundlaug sem er við Sunnubraut í Keflavík.  Þar er bæði inni og útilaug með fullt af pottum og tveimur glænýjum og risastórum rennibrautum.

Í Reykjaneshöll verða a.m.k. 5 hoppukastalar fyrir alla keppendur þar sem við verðum m.a. í fyrsta skipti með lang, lang, lang lengstu þrautabraut landsins.

Í 88 húsinu/ Ungmennagarðinum, Hafnargötu 88 Keflavík eru fjölmargir afþreyingarmöguleikar, bæði inni og úti. Á laugardeginum verður opin hjólabrettaæfing milli kl 13-15 þannig þeir sem vilja prófa hjólabretti geta komið og fengið leiðsögn frá kennara, hjálmar og hjólabretti eru til í húsinu.

Skessuhellirinn við smábátahöfnina í Grófinni verður opinn frá 10-17 báða dagana. 

Við ætlum að skemmta okkur vel saman um helgina.

KarfaN,hagsmunafélag


UPPFÆRÐ LEIKJANIÐURRÖÐUN

Hér á síðunni til hliðar undir Gögn-mótið 2022 er búið að uppfæra flokkaða leikjadagskrá. Um er að ræða leikjadagskrá drengja fædda 2013 sem hefur þurft að taka nokkrum breytingum.

Einnig breyttist lið Skallagríms 2 í Stjarnan 13.

Við mælum jafnframt með því að allir yfirfari sína niðurröðun og leikvelli til öryggis svo allir mæti nú í réttan leik.

KarfaN,hagsmunafélag

 


Niðurröðun klár

Hér á síðunni til hliðar undir Gögn-mótið 2022 er nú hægt að nálgast flokkaða leikjadagskrá allra liðanna ásamt bíótíma. Við vekjum einnig athygli á skjalinu "Dagskrá móts og ýmsar gagnlegar upplýsingar."

Liðin eru á endanum 175 og búið er að setja 473 leiki á dagskrá.  Árgangar 2014 og 2015 fá 6 leiki á lið 1x12min. og árgangar 2011, 2012 og 2013 fá 5 leiki 2x12min.

Leikið verður á 12 völlum í fjórum íþróttahúsum.

  • Vellir 1-6 eru í Blue höllinni á Sunnubraut í Keflavík
  • Vellir 7-8 eru í Ljónagryfjunni í Njarðvík
  • Vellir 9-10 eru í Heiðarskóla Keflavík
  • Vellir 11-12 eru í Akurskóla Njarðvík

Leikjaniðurröðun ásamt frekari mótsupplýsingum verður einnig send með tölvupósti á forráðamenn/þjálfara liðanna.

KarfaN, hagsmunafélag


Leikjaniðurröðun verður gefin út miðvikudaginn 6. apríl

Leikjaniðurröðun er alveg að verða klár og verður gefin út hér á síðunni og send öllum hlutaðeigandi ásamt tímasettri dagskrá á morgun miðvikudag.

KarfaN, hagsmunafélag

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband